Íslenskur her í Afganistan
Íslenskur her er nú í Afganistan og tekur þátt í hernámi landsins. Er það kaldhæðnislegt,að þjóð,sem barist hefur gegn erlendu hernámi og þurft hefur að heyja langvarandi baráttu fyrir eigin sjálfstæði skuli nú taka þátt í að hernema erlenda þjóð og senda þangað hermenn.
Reynt er að breiða yfir það að íslensku liðsmennirnir í Afganistan séu hermenn og þeir kallaðir "friðargæslumenn". En þessir menn, sem eru 17 talsins, eru í einkennisbúningum og bera vopn. Þeir fengu herþjálfun í Noregi. Slíkir menn hafa til þessa verið kallaðir hermenn. Það hefur ekki verið rætt sérstaklega á Alþingi hvort Ísland væri reiðubúið að stofna umræddan her í Afganistan. Svo virðist sem utanríkisráðherra hafi upp á sitt eindæmi ákveðið að stofna umrædda íslenska herdeild. Er það eftir öðru en margar ákvarðanir stjórnarherranna eru nú teknar án þess að leggja þær fyrir Alþingi. Telja má víst, að stofnun íslenskrar herdeildar í Afganistan sé ólögleg. Þegar Björn Bjarnason hreyfði hugmyndum um stofnun íslensks hers sættu þær mikilli andstöðu.
Á ráðherrafundi NATO í Prag 2002 lofuðu forsætis-og utanríkisráðherra að leggja 300 millj. kr. til herflutninga til Írak með íslenskum flugvélum. Þetta loforð sætti mikilli gagnrýni enda virtist svo sem nota ætti íslenskar farþegaflugvélar til herflutninga. Íslensk stjórnvöld urðu því að draga loforðið frá Prag að hluta til baka. Í staðinn var ákveðið að verja peningum til flutninga til Afganistan og Írak. Ísland hefur því kostað flutninga til Afganistan og nú tekur Ísland einnig að sér stjórn flugvallarins í Kabul á vegum NATO með því að senda þangað íslenska herdeild.
Það er mjög óeðlilegt, að Ísland sé að taka þátt í hernámi í landi, sem Bandaríkin réðust inn, í enda þótt sú innrás hafi verið gerð til þess að leita að Bin Laden og ráðast gegn Al Kaida. Nær væri fyrir Ísland að styðja í ríkari mæli en nú uppbyggingarstarf í þróunarlöndum og mannréttindabaráttu þar. Í þeim löndum eru verkefni næg. Ísland hefur unnið nokkurt starf á þessu sviði í Afríku en auka má það starf verulega,einkum aðstoð við mannréttindabaráttu.
Ekki var rætt mikið á Alþingi um fjárveitingar til Afgangistan. Fram kom í fréttum, að Ísland léti 200 mill. kr. renna til Afganistan. Þess verður að vænta, að Alþingi hafi samþykkt þá fjárveitingu, þ.e. til flutninga til Afganistan og stjórnunar flugvallarins í Kabul. Ísland getur ekki í dag rekið stærsta spítala sinn á sómasamlegan hátt. Þar er skorið niður svo mjög, að öryggi sjúklinga er stefnt í hættu. Á sama tíma og þannig er ástatt er hlálegt, að Ísland sé að stunda hermannaleik í fjarlægu landi, Afganistan.
Skoðun
Það er einfalt að vera kosningastjóri Höllu Tómasdóttur
Vigdís Jóhannsdóttir skrifar
Villir á sér heimildir
Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar
Kaldhæðni Katrínar
Kristján Hreinsson skrifar
Það á að kjósa með Exi
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar
Það er nú bara þannig með hann Jón...
Hjördís Sjafnar Ingimundardóttir skrifar
Katrínu sem forseta.
Eiríkur Finnur Greipsson skrifar
Óvelkomið Evrópumet
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar
Flestir munu kjósa Katrínu Jakobsdóttur, beint eða óbeint, ef…
Reynir Böðvarsson skrifar
Breiðar axlir og stór hjörtu
Ingunn Rós Kristjánsdóttir ,Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar
Hér er elíta, um elítu, frá elítu, til elítu
Ragnar Kjartansson skrifar
Ég kýs femínista á Bessastaði
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar
Varðmenn valdsins
Sandra B. Franks skrifar
Til varnar líffjölbreytileika
Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Sigþórsdóttir skrifar
Tækifæri til atvinnuuppbyggingar í haftengdri starfsemi
Kjartan Ólafsson skrifar
Höndlum MS saman
Hjördís Ýrr Skúladóttir skrifar
Forsetinn minn
Eygló Egilsdóttir skrifar
Ísrael verður að hætta að drepa saklausa borgara á Gaza
Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Að kjósa með hjartanu!
Ásdís Guðmundsdóttir skrifar
Heilt kjörtímabil án árangurs í loftslagsmálum
Andrés Ingi Jónsson skrifar
„Nema í alveg sérstökum tilvikum“
Sigurður Örn Hilmarsson skrifar
Forseti Íslands – Katrín Jakobsdóttir
Guðjón Þórir Sigfússon skrifar
Baldur er leiðtogi og mannasættir
Karl Ágúst Ipsen skrifar
Fyrir börnin okkar
Gunnar Ingi Valgeirsson skrifar
Stjórnvöld eru stefnulaus í barna- og fjölskyldumálum
Lúðvík Júlíusson skrifar
Halla Hrund fyrir framtíðina
Þóra Árnadóttir skrifar
Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn
Margrét Dagmar Ericsdóttir skrifar
Ferðamálastefna til framtíðar
Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar
Fótbolti og forseti
Tómas Ingi Tómasson skrifar
Taktík. - Fyrir fegurðina og lýðræðið
Gunnlaugur Ólafsson skrifar